Ekki dugleg að blogga!!!

Ég hef ekki verið neitt sérstaklega dugleg að blogga….

Það er um einn og hálfur mánuður síðan síðast!!

Það er svo sem ekki mikið að gerast hjá mér, það er líka sagt “engar fréttir eru góðar fréttir” ég verð bara að trúa því :)

Núna er ég heima með prinsinn minn því það var hringt í mig frá skólanum og mér tilkynnt að hann væri eitthvað slæmur, auðvitað stökk ég af stað og sótti strákinn eins og vera ber. Ég er nú líka búin að nota tímann hérna heima og taka til í herberginu mínu en það er staður sem situr stundum á hakanum því ég loka bara þangað inn ef það kemur fólk hehe :D

Ég er búin að kaupa fjórar jólagjafir og setja inn pöntun á eina til viðbótar, mikið gott að vera byrjaður á þessu svona til að dreifa kostnaðinum líka ;)

Ég byrjaði á krökkunum hennar Lilju systir í DK og ætla nú að klára að senda þeim pakka FYRIR jól þetta árið… þau eiga öll að vera hjá henni um jólin :D það er æði því ég held bara að það hafi ekki gerst áður ef ég man rétt!! En ég ætla ekki að fullyrða það svo sem…

Jæja ég ætla að fara að taka meira til þar sem ég nennti því ekki um helgina…

Published in: on November 3, 2008 at 2:46 pm Leave a Comment

Til hamingju með daginn Guðfinna Sól ;)

Elsku Guðfinna Sól mín til hamingju með 7 ára afmælið þitt :D

Ég hugsa mikið til ykkar þó ég hafi allt of sjaldan samband… :(

En ég vona að þið hafið það gott þarna úti í DK, ég vildi samt mikið frekar hafa ykkur hérna á klakanum ef ég mætti ráða :D

Það er ekkert merkilegt að gerast í kring um mig þannig að ég hef ekkert verið að blogga neitt, þetta er auðvitað handónýtt hehe..

Jú við vorum að smala síðustu helgi, það var gaman að komast aðeins á hestbak :D Krakkarnir voru líka ánægð með þessa helgi það er svo gaman að geta lofað þeim aðeins að fara á hestbak ;)

Jæja ég er að stelast í vinnunni þannig að ég ætla að hæta núna…

Published in: on September 17, 2008 at 12:21 pm Comments (1)

Fríið búið í bili…

Ég ætla að fara í vinnu á morgun, var samt búin að skrá mig í frí þessa viku, held bara að það verði fínt að eiga inni daga þegar mig langar síðar, ég þekki mig það vel að ég verð mjög sátt við það þegar þar að kemur :D

Ég sótti Tönju í sumarbúðirnar í morgun, hún var mjög sátt við þessa viku ;)

Ég er samt ósátt við að fá engar fréttir af símanum mínum sem er búin að vera í viðgerð í hálfan mánuð núna og enginn vill gefa mér svör um hann, það var talað um að þetta tæki viku tíu daga en það eru komnir 14 dagar og enginn veit neitt um hann… fúlt :(

Ég verð að fara suður til að rífa mig ef ég fæ engin svör fyrir helgi.. :D

Verslunarmannahelgin er búin og við gerðum ekkert nema kíktum í Húsafell á laugardaginn, þar voru Hugrún og Eyjólfur með yngstu tvær skvísurnar, Siddi og Herdís með prinsinn á heimilinu, og svo voru Anna og Kristófer líka. Við grilluðum þarna og fórum svo á brennuna með þeim, við fórum svo bara heim um hálf tólf því við vorum ekki með fellihýsið, það var búið að segja okkur að við fengjum ekki að tjalda þó við kæmum með það samt var allveg pláss og hefði ekki verið neitt mál að koma því fyrir, við nentum bara ekki að lenda í því að keyra alla þessa leið og vera svo rekin burt, en þetta var bara fínt eins og það var líka. Marteinn var bílstjóri þannig að ég gat fengið mér bjór ;)

Jæja nú hef ég bara ekki meira að bulla í bili…

Published in: on August 5, 2008 at 4:41 pm Leave a Comment

Er í sumarfríi…

Ég er í sumarfríi og hef ekkert gert, ja jú ég fór í heimsókn til Hörpu systir eina nótt. :D

Það var æði að koma til hennar eins og við mátti búast, við sátum úti með vinkonu hennar þar til okkur var orðið kalt, en þá fórum við inn og héldum áfram að skemmta okkur í góðu yfirlæti.

Auðvitað fórum við í göngutúr í góða veðrinu morgunn eftir, jæja ok daginn eftir, við fórum ekki fyrr en eftir hádegi þó ég hefði vaknað um níu. En þá var ég búin að fara út að róla með Agnesi Rún og leika í sólinni. ;)

Magnús (Léttfeti) bróðir Marteins er búin að vera hérna hjá okkur í ja ég giska alla vega þrjár vikur, hann býr á Þórshöfn (af öllum stöðum…). Agnes Rún er ofboðslega hrifin af frænda sínum og er búin að láta hann hafa fyrir frænda starfinu síðan hann kom  :D

Eldri stelpurnar eru búnar að vera í fríi með mömmu sinni síðustu viku, Bjarki Aron var vikuna þar á undan með pabba sínum, þetta er búið að vera hálf skrítið sumar, við verðum ekkert í fríi saman, öll á sama tíma og erum ekkert að fara að gera í sumar svona öll saman. Ætli það sé ekki bara í eina skiptið síðustu átta árin eða svo… skrítið að hugsa til þess. En svona er það þegar það þarf að púsla saman mörgum fjölskyldum, það verður bara að gera það besta úr því sem í boði er, er það ekki?

Mig langar svo út í SÓLAR-ferð en það er ekkert í boði núna, verðbólgna er víst ekkert að skána er það??? Ég skil samt ekki af hverju svona margar ferðir eru uppseldar eins og kreppan er að fara illa með mörg heimili í dag.. jú þar komst upp um mig… ég er að kíkja eftir ferðum, þær eru bara mikið dýrari en í fyrra og miklu dýrara þar sem gengið er svo brjálaðyslegt.

Jú það styttist í Versló.. hvað á að gera???

Published in: on July 25, 2008 at 12:46 am Leave a Comment

Írskir dagar á Akranesi…

Núna standa yfir Írskir dagar á Akranesi í þvílíkt góðu veðri, ekki veit ég hvort maður fari á lopapeysuballið en það var rosalega gaman í fyrra, en þá fór ég í fyrsta skiptið á þetta frábæra ball.. ég sá reyndar aldrei hljómsveit en ég heyrði í henni, maður var bara úti að tralla frekar en að vera inni í kássunni þar.

Það er margt fleira í boði fyrir alla fjölskylduna t.d. Tívolístemning, Paint-ball, Kvöldvaka á Kirkjubraut í boði Norðuráls! – Hljómsveitirnar Í svörtum fötum og Ný dönsk,  Línudans og tískusýning, Guinnes golfmótið, Útsýnisflug með þyrlu, Jet Ski leiga, Sandkastalakeppni, Dorgveiðikeppni, Unglingaball, Fjölskyldudagur í Skógræktinni, Barnaskemmtun Söngvaborgar! og bara margt, margt fleira.

Auðvitað eiga allir sem koma að finna eitthvað fyrir sig og enginn ætti að verða í vandræðum með það :D

Published in: on July 4, 2008 at 1:22 pm Leave a Comment

Sól, sól sól ;)

Það er nú meiri blíðan núna :D

Það er ekkert spennandi að vera að vinna núna, mig langar heim í sólbað, reyndar mig langar samt mikið meira að vera á hestamannamóti á Hellu ;)

En svona er lífið, maður fær ekki allt sem maður vill.. á maður kanski bara að sætta sig við það sem í boði er?? Eða á maður að breyta því sem maður vill hafa öðruvísi???

Ég trúi á örlög, en allir hafa sinn frjálsa vilja og skapa það sem þeir kjósa sjálfir í kringum sig að mestu leiti sjálfir og þar er ég enginn undantekning.. þannig að ég ætla bara að vera í fyrra fríi á næsta ári og þá hlít ég að fá sólina sem ég virðist vera að missa af annað sumarið í röð :(

Kanski er það ekkert víst að sólin verði einmitt á sama tíma að ári þannig að það er vonlaust að panta frí eftir því… ætli sólin hafi líka frjálsan vilja??

Ég ætla að fara að vinna núna og hætta þessu bulli ;)

Published in: on at 9:27 am Leave a Comment

Ég lét verða af því að skella mér óvænt til DK

Já ég lét bara slag standa og sit í Vísa súpunni núna…

En það var rosalega gaman að fara með svona stuttum fyrirvara og vera með bæði börnin mín sem höfðu aldrei farið upp í flugvél áður :D

Ég fór´í Tívolí í Köben fyrsta daginn með alla krakkana hennar Lilju systir og mín auðvitað, ekkert smá mikið fjör, ég Bjarki Aron og Agnes Rún fórum svo í dýragarð næstsíðasta daginn okkar Agnesar :D

Það var mikið að gera á stuttum tíma en vona að allir hafi haft gaman af ;)

Lilja mín takk fyrir okkur og vonandi ertu búin að ná þér eftir þessa óvæntu komu mína :D

Ef þið viljið vita meira af þessari skemmtiferð okkar þá verðið þið bara að koma í kaffi (eða kaldan Kalla) og ég gæti jafnvel sýnt ykkur myndir :)

Eitt kom þó uppá en hún Agnes Rún fékk hita næst síðasta daginn en hún er búin að jafna sig þessi elska, já og mamma sem kom heim 3 dögum á eftir okkur kom líka veik heim.

jæja ég verð að hætta núna…

Published in: on June 27, 2008 at 2:21 pm Leave a Comment

Góð hugmynd ;)

Ég fékk frábæra hugmynd áðan…

En Mamma, Gunna frænka og Bjarki Aron eru að fara út til Danmerkur í nótt, mér datt í hug að fara með þeim en koma heim þremur dögum á undan þeim…

Er þetta ekki snilldar hugmynd??

Ég keyri þeim út á völl og innrita mig svo bara líka tíhí öllum að óvörum, já og Agnes Rún auðvitað líka með mér :D

Ég er ekki búin að panta en mikið óskaplega langar mig það…

Published in: on June 10, 2008 at 11:24 am Comments (1)

Í fáum orðum…

Ef ég á að segja í fáum orðum hvernig mér fanst í París þá er það “frábær borg sem allir verða að koma til alla vega einu sinni á ævinni”.

Já við áttum s.s. frábæra ferð til Parísar, það var um og yfir 20°c sól og blíða. Við sáum allt það helsta enda fórum við í túr um borgina með leiðsögumann sem var frá Perú þannig að hann talaði ENSKU sem við skildum, svo endaði sú ferð í siglingu niður Signu með þriggja rétta málsverði, hvítvín, rauðvín og lifandi dinner tónlist, algert æði :D

Ég ætla ekki að hafa það meira núna því það er hellingur að gera að vanda, enda er ég að stelast í vinnunni…

Published in: on May 21, 2008 at 9:43 am Comments (1)

Styttist í Parísar ferð Jibbííí…

Já það styttist óðum í að maður verði komin í borg ástarinnar… spennandi ;)

Published in: on April 22, 2008 at 12:11 am Leave a Comment