Já ég lét bara slag standa og sit í Vísa súpunni núna…
En það var rosalega gaman að fara með svona stuttum fyrirvara og vera með bæði börnin mín sem höfðu aldrei farið upp í flugvél áður
Ég fór´í Tívolí í Köben fyrsta daginn með alla krakkana hennar Lilju systir og mín auðvitað, ekkert smá mikið fjör, ég Bjarki Aron og Agnes Rún fórum svo í dýragarð næstsíðasta daginn okkar Agnesar
Það var mikið að gera á stuttum tíma en vona að allir hafi haft gaman af
Lilja mín takk fyrir okkur og vonandi ertu búin að ná þér eftir þessa óvæntu komu mína
Ef þið viljið vita meira af þessari skemmtiferð okkar þá verðið þið bara að koma í kaffi (eða kaldan Kalla) og ég gæti jafnvel sýnt ykkur myndir
Eitt kom þó uppá en hún Agnes Rún fékk hita næst síðasta daginn en hún er búin að jafna sig þessi elska, já og mamma sem kom heim 3 dögum á eftir okkur kom líka veik heim.
jæja ég verð að hætta núna…