Er í sumarfríi…

Ég er í sumarfríi og hef ekkert gert, ja jú ég fór í heimsókn til Hörpu systir eina nótt. :D

Það var æði að koma til hennar eins og við mátti búast, við sátum úti með vinkonu hennar þar til okkur var orðið kalt, en þá fórum við inn og héldum áfram að skemmta okkur í góðu yfirlæti.

Auðvitað fórum við í göngutúr í góða veðrinu morgunn eftir, jæja ok daginn eftir, við fórum ekki fyrr en eftir hádegi þó ég hefði vaknað um níu. En þá var ég búin að fara út að róla með Agnesi Rún og leika í sólinni. ;)

Magnús (Léttfeti) bróðir Marteins er búin að vera hérna hjá okkur í ja ég giska alla vega þrjár vikur, hann býr á Þórshöfn (af öllum stöðum…). Agnes Rún er ofboðslega hrifin af frænda sínum og er búin að láta hann hafa fyrir frænda starfinu síðan hann kom  :D

Eldri stelpurnar eru búnar að vera í fríi með mömmu sinni síðustu viku, Bjarki Aron var vikuna þar á undan með pabba sínum, þetta er búið að vera hálf skrítið sumar, við verðum ekkert í fríi saman, öll á sama tíma og erum ekkert að fara að gera í sumar svona öll saman. Ætli það sé ekki bara í eina skiptið síðustu átta árin eða svo… skrítið að hugsa til þess. En svona er það þegar það þarf að púsla saman mörgum fjölskyldum, það verður bara að gera það besta úr því sem í boði er, er það ekki?

Mig langar svo út í SÓLAR-ferð en það er ekkert í boði núna, verðbólgna er víst ekkert að skána er það??? Ég skil samt ekki af hverju svona margar ferðir eru uppseldar eins og kreppan er að fara illa með mörg heimili í dag.. jú þar komst upp um mig… ég er að kíkja eftir ferðum, þær eru bara mikið dýrari en í fyrra og miklu dýrara þar sem gengið er svo brjálaðyslegt.

Jú það styttist í Versló.. hvað á að gera???

Published in: on July 25, 2008 at 12:46 am  Leave a Comment  

Írskir dagar á Akranesi…

Núna standa yfir Írskir dagar á Akranesi í þvílíkt góðu veðri, ekki veit ég hvort maður fari á lopapeysuballið en það var rosalega gaman í fyrra, en þá fór ég í fyrsta skiptið á þetta frábæra ball.. ég sá reyndar aldrei hljómsveit en ég heyrði í henni, maður var bara úti að tralla frekar en að vera inni í kássunni þar.

Það er margt fleira í boði fyrir alla fjölskylduna t.d. Tívolístemning, Paint-ball, Kvöldvaka á Kirkjubraut í boði Norðuráls! – Hljómsveitirnar Í svörtum fötum og Ný dönsk,  Línudans og tískusýning, Guinnes golfmótið, Útsýnisflug með þyrlu, Jet Ski leiga, Sandkastalakeppni, Dorgveiðikeppni, Unglingaball, Fjölskyldudagur í Skógræktinni, Barnaskemmtun Söngvaborgar! og bara margt, margt fleira.

Auðvitað eiga allir sem koma að finna eitthvað fyrir sig og enginn ætti að verða í vandræðum með það :D

Published in: on July 4, 2008 at 1:22 pm  Leave a Comment  

Sól, sól sól ;)

Það er nú meiri blíðan núna :D

Það er ekkert spennandi að vera að vinna núna, mig langar heim í sólbað, reyndar mig langar samt mikið meira að vera á hestamannamóti á Hellu ;)

En svona er lífið, maður fær ekki allt sem maður vill.. á maður kanski bara að sætta sig við það sem í boði er?? Eða á maður að breyta því sem maður vill hafa öðruvísi???

Ég trúi á örlög, en allir hafa sinn frjálsa vilja og skapa það sem þeir kjósa sjálfir í kringum sig að mestu leiti sjálfir og þar er ég enginn undantekning.. þannig að ég ætla bara að vera í fyrra fríi á næsta ári og þá hlít ég að fá sólina sem ég virðist vera að missa af annað sumarið í röð :(

Kanski er það ekkert víst að sólin verði einmitt á sama tíma að ári þannig að það er vonlaust að panta frí eftir því… ætli sólin hafi líka frjálsan vilja??

Ég ætla að fara að vinna núna og hætta þessu bulli ;)

Published in: on July 4, 2008 at 9:27 am  Leave a Comment  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.