Það er nú meiri blíðan núna
Það er ekkert spennandi að vera að vinna núna, mig langar heim í sólbað, reyndar mig langar samt mikið meira að vera á hestamannamóti á Hellu
En svona er lífið, maður fær ekki allt sem maður vill.. á maður kanski bara að sætta sig við það sem í boði er?? Eða á maður að breyta því sem maður vill hafa öðruvísi???
Ég trúi á örlög, en allir hafa sinn frjálsa vilja og skapa það sem þeir kjósa sjálfir í kringum sig að mestu leiti sjálfir og þar er ég enginn undantekning.. þannig að ég ætla bara að vera í fyrra fríi á næsta ári og þá hlít ég að fá sólina sem ég virðist vera að missa af annað sumarið í röð
Kanski er það ekkert víst að sólin verði einmitt á sama tíma að ári þannig að það er vonlaust að panta frí eftir því… ætli sólin hafi líka frjálsan vilja??
Ég ætla að fara að vinna núna og hætta þessu bulli